Í GÓÐUM SELSKAP
Í sýningu Guðrúnar, Í góðum selskap er kafað ofan í þúsund ára gamlar hefðir og lifnaðarhætti Grænlendinga og Íslendinga sem eiga það sameiginlegt að hafa háð lífsbaráttu sína á Norðurslóðum. Verkin eru unnin úr íslensku lambaskinni og selskinni frá Grænlandi í samstarfi við handverksfólk í Qaqortoq. Við meðhöndlun og vinnslu efnisins leitast Guðrún Helga við að sameina fortíð og nútíð með því að endurvekja ævafornt handbragð og fullnýta auðlindir með nútíma hönnun, og skapa vandaðar flíkur sem eru í senn tímalausar og einstakar. Guðrún nálgast hönnunina sem listaverk og með sýningunni dregur hún línu á milli sjálfbærni og hönnunar. Á sýningunni voru til sýnis átta jakkar og hver þeirra er einstakur. Guðrún Helga kynntist hefðum og lifnaðarháttum Grænlendinga fyrir sjö árum. Hún hefur síðan þá ferðast á milli Grænlands og Íslands og unnið í nánu samstarfi með Nínu Efraimsen. Nína vinnur með selskinn að hætti heimamanna og í þessu samstarfi lærðu þær margt hvor af annarri.
Guðrún dregur línu á milli lifnaðarhátta Grænlendinga og Íslendinga fyrr á öldum, hvernig vaðmálið og selskinnið eiga sér hliðstæðu í lífsbaráttu fólks á Norðurslóðum. Með hönnun sinni hreyfir hún við nýrri vídd, blandar saman selskinni, lambaskinni, fóðri frá Ítalíu og sérsmíðuðum rennilásum. Handverkið er tímalaust og sjálfbært. Því er ætlað að endurspegla þá virðingu sem Guðrún ber fyrir fortíðinni, sögu Grænlendinga og handbragði, en ekki síst fyrir framtíðinni því verkin eiga að endast út ævina, ferðast frá einnig kynslóð til annarrar þar til líftími þeirra klárast. Allt efni verkanna er lífrænt og brotnar niður í náttúrunni. Skila mætti því aftur ofan í jörðu. Í verkum sínum endurvekur Guðrún ævafornt handbragð og leitast við að fullnýta auðlind með einstakri hönnun sem ætlað að umlykja manneskjuna fegurð, sérstöðu, sögu og yl í kuldanum.
Tilvitnun frá Guðrúnu: „Á Grænlandi er lífsgjöf að veiða sel. Selurinn er veiddur til matar og selskinnið er afgangsafurð. Virðing Grænlendinga fyrir selnum birtist með þeim hætti að allar afurðir selsins eru nýttar til þess að geta gefið fjölskyldunni gott líf. Lífsbarátta Grænlendinga er undraverð og mér mikill innblástur. Í gegnum þetta ferli hef ég hlotið einstakt tækifæri til að skilja betur og tengjast samfélagi Grænlendinga í Qaqortoq sem vekur hugrenningatengsl við hvernig lífskjör voru á Íslandi fyrir um hundrað árum," segir Guðrún.